![]() | ![]() | |||
|
Búðardalsá á Skarðsströnd Búðardalsá er tveggja stanga á þar sem leyfilegt er að veiða á flugu og maðk, innifalið í verði er mjög gott hús með allri aðstöðu. Sumarið 2003 gaf áin tæplega 260 laxa. Leiðarlýsing : Hafir þú ekki komið áður að Búðardalsá fylgir hér stutt leiðarlýsing. Sé farið frá Reykjavík er ekið sem leið liggur í gegnum Búðardal (kauptún) og eru það um 150 km. Þaðan er haldið beint áfram um Svínadal og að verslun Esso að Skriðulandi í Saurbæ (Jónsbúð) en það eru u.þ.b 30 km frá Búðardal. Þar er beygt til vinstri og ekið út á Skarðströnd. Eftir að hafa ekið u.þ.b 20 km leið eftir Skarðströndinni kemur þú að Búðardalsá, ekur yfir brúna og u.þ.b. 500m.betur, en þar stendur brúnt timburhús á hægri hönd merkt Kastali (veiðihús). Hér er mynd af veiðihúsinu. og hér er prentvæn útgáfa af leiðarlýsingunni. Veiðihús: Við Búðardalsá hefur verið tekið í notkun nýtt veiðihús sem stendur við hlið þess gamla á Hvalgröfum. Í húsinu er öll sú aðstaða sem við teljum að veiðimenn þurfi til að geta látið sér líða vel, milli þess sem rennt er fyrir. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með tveimur rúmum hvert, stór setustofa með borðstofu, baðherbergi með sturtu og baði, stórt og gott eldhús og fleira. Svefnpoka eða sængurfatnað þurfa viðkomandi að taka með sér. Veiðitími: Tekið er við veiðihúsinu kl.14.00. og veitt frá kl.15.00 til kl. 22.00. komudag. Heila veiðidaga miðast veiðin frá 07.00 - 13.00 og 16.00 - 22.00 Síðasta daginn er veitt frá kl.07.00 - 12.00 og húsi aftur skilað kl 14.00. Með ósk um góða daga við Búðardalsá, njótið vel. Hér
eru nokkrar myndir úr Búðardalsá, einnig eru hér
Hring-sjármyndir af nokkrum veiðistöðum. | ||||