Fréttahornið 2004

15.01.2004

Á þessu ári höfum við ákveðið að halda úti fréttahorni, til að upplýsa veiðimenn og aðra áhugasama um framvindu og gengi veiða í Búðardalsá. Þar verða ávallt sem nýjastar tölur um veiði í ánni og jafnvel hvar hann er helst að taka. Til að okkur gangi sem best að uppfæra þetta fréttahorn, væri frábært ef þið sem eruð að veiða í ánni gætuð sent okkur línu á palli@sund.is þegar þið komið í bæinn eftir veiðitúrinn, ekki myndi skemma fyrir ef menn ættu skemmtilegar veiðisögur og myndir á stafrænu formi
í myndasafnið. Með von um frábæra tíð.

 

15.01.2004

Nú fer hver að verða síðastur, því einungis 4 holl eru eftir í Búðardalsá í sumar. Smellið HÉR til að skoða.